Hvað er NAD?
NAD (Nicotinamide Adenine Dinucleotide) er kóensím sem nánast allar frumur líkamans nota til orkuframleiðslu og í mikilvægum ferlum sem tengjast viðgerðum á DNA. Sýnt hefur verið fram á að magn NAD+ í líkamanum minnkar náttúrulega með aldrinum. Þetta hefur áhrif á starfsemi frumna og getur haft áhrif á hraða öldrunar, sem er ein af ástæðunum fyrir því að NAD+ er oft flokkað með bætiefnum sem tengjast langlífi.
Þó að hægt sé að finna NAD+ sem bætiefni er algengara að taka svokallaða forvera NAD+, eins og NMN (nicotinamide mononucleotide) og NR (nicotinamide riboside), til að auka NAD-magn í líkamanum. Ein helsta ástæðan fyrir þessu er sú að NAD+ sjálft hefur lægra líffræðilegt aðgengi (bioavailability), þ.e.a.s. upptaka líkamans er lakari á því heldur en forverunum.
Hvað er NAC?
N-acetylcysteine (NAC) er afleiða amínósýrunnar cysteins sem styður myndun glútaþíons og styrkir andoxunarvarnir líkamans. NAC hefur öfluga andoxunareiginleika sem geta hjálpað til við að draga úr oxunarálagi og vernda heilsu frumna.
Ein af ástæðunum fyrir sterkum andoxunaráhrifum NAC er hæfni þess til að styðja við myndun glútaþíons, sem er eitt öflugasta andoxunarefni sem líkaminn framleiðir með náttúrulegum hætti. Glútaþíon hjálpar til við að vernda frumur gegn skemmdum vegna streitu, mengunar eða bólgu svo eitthvað sé nefnt.
NAC eða cystein, er amínósýra og mikilvæg byggingareining sem líkaminn þarf til að framleiða glútaþíon. Án cysteins getur líkaminn ekki framleitt nægilegt magn glútaþíons á skilvirkan hátt.
Sumar rannsóknir benda til þess að NAC-bætiefni geti stutt við öndunarfæraheilsu, sérstaklega hjá einstaklingum með langvinna lungnateppu (COPD). NAC getur einnig stutt við lifrarheilsu og afeitrun líkamans.
Munurinn á NAD+ og NAC
Eins og áður sagði er algengt að fólk rugli saman NAD+ og NAC þar sem nöfnin hljóma mjög líkt. Þau eru eins og áður sagði þó ólík og nauðsynlegt er að skilja muninn til þess að vita hvenær og hvernig á að nota bætiefnin sem stuðning við tiltekin heilsumarkmið.
NAC bætiefni eru mun algengari og tiltölulega ódýr. Þau fást í heilsuvöruverslunum, apótekum og ýmsum netverslunum.
NAD+ bætiefni eru sérhæfðari og auðveldara er að finna þau á netinu en í verslunum. Hins vegar má orðið finna NORDBO NAD+ í sjálfstæðu apótekunum og í Fjarðarkaupum. Oftast er NAD+ tekið inn í formi forvera þess, NR (nicotinamide riboside), þar sem upptakan er betri.
NAD eða NAC?
Bæði NAD+ og NAC bætiefni hafa áhrif gegn öldrun og eru talin geta stuðlað að langlífi. NAD+ styður orkuframleiðslu og viðgerð DNA, á meðan NAC verndar gegn oxunarálagi og styður heilsu frumna.
Ef heilsumarkmið þín snúast fyrst og fremst um orkuefnaskipti, þá er NAD+ frábært til að viðhalda náttúrulegu orkustigi. Ef áherslan er á andoxun og öndunarfæraheilsu, ætti NAC að vera valið þitt.
En þú þarft ekki að velja aðeins eitt.
Margir finna að sambland af NAD+ og NAC veitir jafnvægi og stuðning á mörgum sviðum, þar með talið frumuvirkni, orku og andoxun.
Ef þú hefur heilsutengdar áhyggjur er nauðsynlegt að ráðfæra sig við lækni eða heilbrigðisstarfsmann áður en inntaka á nýjum fæðubótarefnum hefst.
Nordbo framleiðir bæði NAD+ Synergy og NAC-Synergy. Galdurinn á bak við NORDBO vítamínin er m.a. sá að hjá NORDBO er alltaf unnið með það að leiðarljósi að finna réttu leiðina til þess að tryggja hámarksupptöku líkamans á viðkomandi fæðubótarefni.
NORDBO NAD+ Synergy inniheldur NAD+ forvera en einnig Q10, B12 og Reservatrol sem hafa samverkandi áhrif þegar kemur að því að auka orkuflutning til frumna og til þess að hindra oxunaráhrif sindurefna.
NORDBO NAC-Synergy inniheldur NAC (N-asetýl-L-cystein) sem er amínósýra sem hjálpar líkamanum að framleiða glútaþíon (glutathione), eitt mikilvægasta náttúrulega andoxunarefnið. NAC er blandað við C-, E- og selenvítamín til þess auka áhrifin. Í blönduna er einnig notað Astragin® sem er einkaleyfisvarið plöntuþykkni úr astragalus og notoginseng, sem í rannsóknum hefur reynst styðja við upptöku líkamans á amínósýrum.

