Mjólkurþistill er öflug jurt og eitt af uppáhaldshráefnum DR.VEGAN. Fyrst og fremst vegna þess hversu áhrifarík hún er. Hún er einnig lykilinnihaldsefni í metsöluvörunni Debloat & Detox, sem vinnur gegn uppþembu og styður við náttúrulega afeitrun lifrarinnar. Ein helsta ástæðan fyrir því að mjólkurþistill og Debloat & Detox hafa orðið svona vinsæl er sú að þegar þau eru tekin áður en farið er út að skemmta sér að kvöldi er líklegt að þau dragi úr slappleikatilfinningu og þreytu morguninn eftir.

En hvernig virkar þessi kraftmikla jurt?
Hvað er mjólkurþistill?
Mjólkurþistill er jurt sem á uppruna sinn í Evrópu og einkennist af fjólubláum blómum sem hafa lengi verið notuð í náttúrulækningum. Virka efnið í mjólkurþistli er flavónóíð sem kallast sílýmarín, sem hefur áhrif á ýmsa líffræðilega ferla í líkamanum.
Til hvers er mjólkurþistill notaður?
Mjólkurþistill er notaður í margvíslegum tilgangi og einn helsti kostur hans er hversu fjölhæfur hann er — allt frá því að styðja við náttúrulega afeitrun líkamans og til þess að styrkja ónæmiskerfið.
1. Afeitrun
Mjólkurþistill styður við afeitrunargetu lifrarinnar og verndar hana gegn skaðlegum eiturefnum sem geta valdið skemmdum á lifrarfrumum. Sílýmarín, virka efnið í mjólkurþistli, styður við framleiðslu á glútaþíóni, sem er eitt mikilvægasta afeitrunarensím líkamans. Rannsóknir hafa sýnt að sílýmarín hjálpar til við að tryggja að eiturefni komist ekki inn í frumurnar og valdi skaða.
2. Lifrarsjúkdómar
Margvíslegar rannsóknir hafa verið gerðar á notkun mjólkurþistils við lifrarsjúkdómum eins og lifrarskorpulifur og óáfengri fitulifur. Rannsóknir hafa sýnt að sílýmarín getur örvað endurnýjun lifrarinnar, hamlað myndun trefjafrumna (sem valda skorpulifur) og haft bólgueyðandi áhrif.
3. Melting
Mjólkurþistill hefur margvíslegan ávinning fyrir meltinguna. Í fyrsta lagi örvar hann framleiðslu meltingarvökva, þar á meðal magasýru og gall, sem eru nauðsynleg til að brjóta niður fæðu á skilvirkan hátt. Þess vegna er mjólkurþistill oft notaður til að draga úr uppþembu eftir máltíðir.
Mjólkurþistill styður einnig við eðlilega hreyfingu meltingarvegarins og hjálpar líkamanum að flytja fæðu áfram á réttum hraða. Þetta stuðlar að jafnvægi í þarmaflórunni og heldur uppþembu í skefjum. Sílýmarín er að miklu leyti brotið niður í þörmum af þarmabakteríum og getur þannig stuðlað að almennri heilsu meltingarvegarins.
Þeir sem þjást af IBS (ertils ristli) eða telja að krónísk uppþemba tengist IBS eða örveruflóru þarmanna, nota freakr góðgerla í stað mjólkurþistils. Probiotics eða góðgerlar endurbyggja þarmaörveruflóruna með heilbrigðum, virkum bakteríum og berjast gegn skaðlegum bakteríum, lífverum og sýklum sem geta valdið IBS.
Heildarheilsa okkar er aðeins jafn góð og heilsa meltingarkerfisins og þau næringarefni sem líkaminn dregur úr fæðunni sem við borðum. Líkaminn treystir á þessi næringarefni fyrir öll nauðsynleg líffræðileg ferli, þannig að góð melting er mun mikilvægari en margir gera sér grein fyrir. Þannig getur örlítill stuðningur frá mjólkurþistli haft veruleg áhrif á heilsuna.
4. Andleg heilsa
Þar sem mjólkurþistill hefur áhrif á meltingu, hefur hann einnig óbein áhrif á svokallaðan þarma–heila-ás. Þarma–heila-ásinn er flókið samspil milli heilbrigðis þarmanna og andlegrar heilsu. Taugaboðefni og hormón eins og serótónín eiga uppruna sinn í þörmunum og berast þaðan til heilans, þar sem þau hafa áhrif á skap, hvatningu og matarlyst. Andleg heilsa tengist þannig beint heilbrigðum þörmum.
5. Ónæmiskerfi
Rannsóknir hafa sýnt að sílýmarín úr mjólkurþistli hafi ónæmisstýringar- og bólgueyðandi eiginleika og geti gagnast fólki með sjálfsofnæmissjúkdóma og bólgusjúkdóma.
Einnig er sterk tenging milli þarmaheilsu og ónæmiskerfis — um 70% af ónæmiskerfi líkamans á upptök sín í þörmunum. Þegar fæða meltist á réttan hátt stuðlar það að heilbrigðri bakteríuflóru í þörmunum. Þetta jafnvægi hefur bein áhrif á ónæmið og getu líkamans til að berjast gegn sjúkdómum. Rétt virkni ónæmiskerfisins er einnig háð getu líkamans til að afeitra sig — uppsöfnun eiturefna getur dregið úr virkni ónæmiskerfisins.
Hvernig á að velja mjólkurþistilsfæðubótarefni?
Mjög mikilvægt er að muna að þegar þú velur mjólkurþistilsuppbót þarftu að ganga úr skugga um að hún innihaldi sílýmarín. Debloat & Detox inniheldur 1440 mg af mjólkurþistli og 80 mg af sílýmaríni sem er hámarksmagn sem er leyfilegt í fæðubótarefnum. Ef sílýmarín er ekki sérstaklega tilgreint í innihaldslýsingu og næringartöflu fæðubótarefnisi, þýðir það einfaldlega að varan inniheldur það ekki
Aukaverkanir mjólkurþistils
Fáar aukaverkanir eru tengdar notkun mjólkurþistils, en sumir hafa greint frá ógleði og uppþembu. Samkvæmt WebMD eru einstaklingar sem eru með ofnæmi fyrir ákveðnum plöntum, svo sem ætiþistli, frjókornaurtum (ragweed), margreytum og krýsantemum, líklegri til að vera einnig með ofnæmi fyrir mjólkurþistli. Barnshafandi konur eiga alltaf að hafa samband við lækni áður en þær taka inn nýtt fæðubótarefni eins og mjólkurþistil.
Debloat & Detox fæst í vefversluninni okkar: fors.is
Heimild: DR.VEGAN

