Skammdegisþunglyndi er ekkert nýtt fyrirbæri. Flestir kannast við það. Sjaldnar er talað um kynorkublús eða að kynorka geti verið minni yfir vetrartímann. Hins vegar upplifa margir minni kynlöngun á þessum tíma þó svo að það sé persónubundið. Þetta á sér hins vegar allt saman eðlilegar skýringar.
Minna sólarljós hefur áhrif á getu líkamans til þess að framleiða kynhormóna
Minni dagsbirta hefur áhrif á undirstúkuna í heilanum (hypothalamus) sem hefur áhrif á framleiðslu kynhormónana okkar: Testósterón, Estrógen og Dopamín.
Testósterón er nauðsynlegt fyrir kynorkuna (libido)bæði hjá körlum og konum. Estrógen er nauðsynlegt fyrir kynörvun og kynlöngun auk þess sem estrógen myndar nauðsynlegan raka í leggöngum og kemur í veg fyrir þurrk. Dópamín er taugaboðefni sem hefur áhrif á löngun, einbeitingu og vellíðan. Skortur á Dópamíni getur leitt til þunglyndis.
Melatónín (svefnhormónið okkar) hækkar fyrr á daginn þegar dagsbirtan er takmörkuð sem aftur gerir okkur syfjaðari og orkuminni. Kynlöngun minnkar við slíkar aðstæður því segja má að líkaminn fari fyrr í hvíldarstöðu (rest mode).
Skammdegisblús
Skammdeginu fylgja oft tíðari skapsveiflur sem eiga sér m.a. orsakir í minni hreyfingu eða útiveru, fjárhagsáhyggjum yfir jól og áramót, auknu vinnuálagi yfir vetrartímann og einfaldlega því sem við getum kallað skammdegisblús. Þetta hefur áhrif á vellíðan og einbeitingu. Seratónín og Dópamín framleiðslan lækkar og kynorkan sömuleiðis.
Lífsstílsþættir sem hafa áhrif á kynhvöt í skammdeginu
Minni orka og minni hreyfing
Kalt veður og dimmari kvöld draga oft náttúrulega úr líkamlegri hreyfingu. Hins vegar getur minni hreyfing leitt til:
Þetta getur haft lúmsk en veruleg áhrif á löngun og viðbragðsgetu.
Truflað svefnmynstur
Með breytingum á birtu og melatóníni (svefnhormóninu) getur svefn orðið óreglulegur eða ekki eins endurnærandi. Óreglulegur svefn hefur áhrif á kynhvöt með því að raska hormónajafnvægi, auka streituviðbrögð og tæma orkuforða.
Þægindaát og sveiflur í blóðsykri
Vetrarlöngun í kolvetnaríkan mat getur valdið snöggum hækkunum og lækkunum á blóðsykri, sem hafa áhrif á skap, orku og hormónastöðugleika – allt eru þetta þættir sem hafa áhrif á kynhvöt.
Leiðir til úrbóta
Þótt árstíðabundnar lægðir í kynlöngun séu eðlilegar er hægt að gera ýmislegt til þess að styðja við hormónajafnvægi, skap og orku.
1. Hægt er styðja framleiðslu kynhormóna með lykil vítamínum og snefilefnum
Snefilefni gegna lykilhlutverki í hormónastjórnun, orkuframleiðslu og jafnvægi taugaboðefna. Að tryggja að þú fáir rétt magn getur skipt verulegu mál. Dæmi um nauðsynleg snefilefni eru Zink, Selen, Króm, Magnesíum og Kalsíum svo eitthvað sé nefnt
Í þessu sambandi má benda á tvö vinsæl og virk fæðubótarefni sem hafa fengið góðar viðtökur á Íslandi eins og víðast hvar.
DR.VEGAN® Men’s ProMulti
Styður kynhvöt með völdum lykilvítamínum og steinefnum. Sink, sem stuðlar að eðlilegu testósterónmagni. Selen, sem styður sæðismyndun og veitir andoxunarvörn. Vítamín D, sem er nauðsynlegt fyrir hormónajafnvægi og stöðugt skap. B-vítamín, sem styðja eðlilegt orkuefnaskipti.

DR.VEGAN® Women’s ProMulti
Þessi formúla inniheldur lykilnæringarefni sem tengjast hormónajafnvægi og stuðningi við kynhvöt. Þar á meðal vítamín B6 sem styður við hormónajafnvægi og hormónastjórnun. Vítamín D, sem er oft lágt yfir vetrarmánuðina og er nauðsynlegt fyrir stöðugt skap og orku. Járn, B12 og fólat sem hjálpa til við að draga úr þreytu og styðja við blóðstreymi og þá súrefnisflutning. Magnesíum, sem er mikilvægt fyrir streitustjórnun og svefn.

2. Bæta skap og andlega líðan
Útivist í dagsbirtu er lykilatriði. Nauðsynlegt er að stunda reglulega hreyfingu – jafnvel stuttar göngur eða æfingar heima sem auka dópamín-og endorfín framleiðslu líkamans. Einnig er gott að notast vð slökunaraðferðir eins og djúpöndun eða jóga til að auka vellíðan og koma skapinu í lag.
3. Hámarka svefn og svefngæði
Góður svefn hjálpar til við að stjórna testósteróni, kortisóli og melatóníni, sem skipta öllu máli fyrir kynhvöt. Í því sambandi er gott að huga að eftirfarandi:
Nauðsynlegt er að halda reglubundinni svefnrútínu.
Draga þarf úr koffínneyslu eftir miðjan dag.
Gott er að komast út og njóta dagsbirtu á hverjum degi.
Gott magnesíum á kvöldin stuðlar að slökun.
4. Viðhalda blóðrás og virkni
Hreyfing eykur blóðflæði og framleiðslu á endorfíni og boðefnavirkni köfnunarefnisoxíðs - en allt er þetta mikilvægt fyrir kynorkuna.
Þegar öllu er á botninn hvolft þá eru sveiflur í kynorku í skammdeginu eðlilegar og flestir finna fyrir því. Við getum hins vegar með réttu mataræði, hreyfingu, útivist og inntöku á réttu fæðubótarefnunum tekið stjórnina í okkar hendur.
(Heimild: DR.VEGAN®)