NAC - leggðu nafnið á minnið

NAC - leggðu nafnið á minnið

Vísindalega staðfest virkni NAC

NAC er núna víða til umfjöllunar. Um er að ræða einfalda sameind, sem styður frjósemi, hormónajafnvægi, meltingarheilsu, ónæmiskerfi og heilastarfsemi. Ótrúlegt en satt.

Þeir sem starfa við rannsóknir á fæðubótarefnum og heilsufari átta sig fljótlega á því að eitt fæðubótarefni kemur sífellt upp aftur og aftur – allt frá rannsóknum á frjósemi, efnaskiptum almennt, öldrun, ónæmi eða geðheilbrigði. Þetta næringarefni er amínósýran: N-asetýl-sýstein, eða NAC.

NAC er hvorki tískubóla né skyndilausn. Það er eitt mest rannsakaða fæðubótarefni sem völ er á – og ávinningurinn er fjölþættur.

NAC hjálpar líkamanum að mynda meira Glútaþíon

Glútaþíon (glutathione) er aðalandoxunarefni líkamans. Allar frumur reiða sig á Glútaþíon til að stýra bólgum, afeitrandi ferlum, hvatberavirkni og ónæmisvörnum.
Þegar Glútaþíon er lágt, minnkar seigla líkamans. Þegar aftur á móti gildið hækkar starfar líkaminn betur á flestum sviðum.


Stuðningur við frjósemi og æxlunargetu

Æxlunarvefir eða frumur í æxlunarvefjum eru sérstaklega viðkvæmar fyrir oxunarálagi. Ofgnótt sindurefna getur skaðað sæði, egg og fóstur. NAC hjálpar til við að vernda þessar frumur með því að endurheimta glútaþíon og draga úr bólgum.

Klínískar rannsóknir sýna að NAC getur:

  • Bætt hreyfanleika og gæði sæðis

  • Stutt egglos

  • Bætt eggjagæði

  • Dregið úr hættu á fósturláti hjá ákveðnum hópum

  • Bætt líkur á þungun í sumum frjósemismeðferðum

Góð andoxunarvirkni tengist æxlunarárangri.

NAC getur því verið gagnlegt 

  • Fyrir þá sem reyna að eignast barn

  • Til að bæta sæðisgæði

  • Til að koma í veg fyrir óreglulegt egglos

  • Til að draga úr likum á endurteknum fósturlátum


PCOS og hormónajafnvægi

Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni (PCOS) tengist sterkt insúlínónæmi, bólgum og oxunarálagi. Allt eru þetta þættir sem NAC getur unnið gegn.

Rannsóknir sýna að NAC getur:

  • Bætt insúlínnæmi

  • Lækkað fastandi insúlín

  • Stutt reglulegra egglos

  • Komið reglu á tíðahring

  • Dregið úr einkennum tengdum auknum andrógenum

Í sumum rannsóknum sýndi NAC svipaðan árangur og metformín en með færri aukaverkunum. Með því að styðja frumustarfsemi og blóðsykursstjórnun styrkir NAC líkamann til þess að endurheimta efnaskiptajafnvægi.

NAC getur því verið gagnlegt fyrir

  • Konur með PCOS

  • Konur með óreglulegar blæðingar

  • Konur með óstöðugan blóðsykur

  • Konur með hormónatengda þreytu


Meltingarheilsa og seigla örveruflóru

Slímhúð meltingarvegarins verður stöðugt fyrir álagi nútímalífs. Sýklalyf, ofunnin matvæli, sýkingar og langvarandi streita geta veikt hana. NAC styður heilbrigði meltingarvegarins á margvíslegan hátt.

Það getur:

  • Rofið skaðlegar bakteríuhimnur

  • Dregið úr ofvexti sjúkdómsvaldandi baktería

  • Stutt heilbrigðan þarmavegg

  • Lækkað bólgur í þörmum

  • Verndað þarmafrumur með andoxunarstuðningi

Heilbrigðari þarmaveggur bætir meltingu, upptöku næringarefna og jafnvægi ónæmiskerfisins.

NAC getur því verið gagnlegt fyrir

  • Einstaklinga með uppþembu eða IBS-lík einkenni

  • Einstaklinga sem nota oft sýklalyf

  • Einstaklinga með meltingaróþægindi

  • Einstaklinga með litla orku eða viðvarandi bólgur


Ónæmis- og öndunarvernd

NAC hefur verið notað klínískt í áratugi til að styðja lungna- og ónæmisheilsu.
Það þynnir slím og verndar lungnavef gegn oxunarskemmdum, á sama tíma og það styrkir starfsemi ónæmisfrumna með glútaþíonstuðningi.

Rannsóknir benda til að NAC geti:

  • Dregið úr tíðni kvefs og flensu

  • Stytt veikindatíma

  • Unnið gegn langvinnum öndunarfærasjúkdómum

  • Minnkað bólgur í loftvegi

Það er oft notað yfir vetrarmánuðina eða á álagstímum.

NAC  getur því verið gagnlegt fyrir

  • Einstaklinga með tíðar sýkingar

  • Einstaklinga sem þurfa árstíðabundinn ónæmisstuðning

  • Einstaklinga sem búa við mengunarálag

  • Einstaklinga sem takast á við langvinna ertingu í öndunarvegi


Heilastarfsemi og skap

Heilinn er sérstaklega viðkvæmur fyrir oxunarálagi og bólgum. NAC getur stutt hvort tveggja.

Klínískar rannsóknir hafa sannað virkni NAC þegar kemur að:

  • Kvíða

  • Þunglyndi

  • Áráttu og þráhyggju

  • Fíkn og löngun

  • Þvingunarhegðun

NAC er eitt fárra næringarefna sem með rannsóknum hefur sýnt fram á virkni þegar kemur að geðheilbrigði.

NAC getur því verið gagnlegt fyrir

  • Einstaklinga sem búa við andlega þreytu

  • Einstaklinga sem búa við mikla streitu

  • Einstaklinga sem glíma við áráttuhegðun eða fíkn

  • Einstaklinga með skapsveiflur

Galdurinn á bak við NAC

Galdurinn á bak við NAC eða virkni NAC má rekja til þriggja þátta 

  • NAC eykur glútaþíon

  • NAC dregur úr oxunarálagi

  • NAC  styrkir hvatbera og frumur



Notkun NAC og NAC synergy

Samkvæmt rannsóknum er gott að taka 600–1800 mg á dag, í nokkrum skömmtum.
Einnig er mælt með að taka NAC á milli mála til að bæta upptöku. 

En til að tryggja upptöku þarf að velja vandaða vöru eins og NAC Synergy frá NORDBO.

NAC Synergy er sérstaklega hannað til þess að tryggja upptöku og þá hámarka virkni. Í NAC Synergy er Astragin®  sem er einkaleyfisvarið plöntuþykkni úr astragalus og notoginseng, sem í rannsóknum hefur reynst styðja við upptöku amínósýra eins og NAC. Í NAC Synergy eru engin óæskileg aukaefni eða fyllingarefni eins og finna má hjá fjölmörgum framleiðendum.

Ef þú ert barnshafandi, á lyfjum eða með sjúkdóm skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú tekur fæðubótarefni eins og NAC Synergy frá NORDBO.


Stefna FORS og NORDBO fer saman

FORS leggur áherslu á að finna vörur með rannsóknarstaðfesta virkni sem virkar þar sem mestu máli skiptir. NAC Synergy frá NORDBO er nákvæmlega þannig vara.

NAC Synergy er eitt fjölhæfasta fæðubótarefni sem völ er á.

NAC Synergy og NORDBO vörulínuna má finna á fors.is