The No Bar: Alvöru próteinstykki

The No Bar: Alvöru próteinstykki

FORS  ·  Nýtt hjá FORS  ·  Hollt og Gott
The No Bar: Próteinstykki frá Svíþjóð án allra aukaefna
Engin gervisætuefni. Engin sykuralkóhól. Engin fylliefni. No Bar er sænskt próteinstykki gert úr fáum alvöru hráefnum. Það fæst nú eingöngu í vefversluninni okkar.
The No Bar próteinstykki í fjórum bragðtegundum

Af hverju flest próteinstykki eru ekki eins holl og þau líta út fyrir

Flest próteinstykki eru markaðssett sem heilsuvara, en innihaldslýsingin segir oft aðra sögu. Til að framleiða próteinstykki í stórum stíl sem bragðast vel og sem hefur langt geymsluþol grípa framleiðendur oft til innihaldsefna sem hafa lítið með raunverulega næringu að gera.

Þessi óæskilegu innihaldsefni eru meðal annars:

  • Mjög unnin prótein og þykkni sem oft eru unnin úr ódýrum hráefnum
  • Sykuralkóhól eins og maltitól, sorbitól og xýlítól, sem geta valdið uppþembu, krömpum og meltingaróþægindum
  • Gervisætuefni þar á meðal aspartam og asesúlfam-K
  • Fleyti-, þykkingar- og bindiefni sem eru notuð til að bæta áferð og lengja geymsluþol
  • „Náttúruleg" bragðefni sem eru allt annað en það, þar sem fyrirtæki geta falið nánast hvað sem er undir því hugtaki

Niðurstaðan er oft vara sem lítur vel út á pappír án þess að skila því sem að er stefnt. Uppþemba, vindgangur eða þyngdartilfinning sem margir upplifa eftir að hafa borðað próteinstykki er ekki tilviljun. Þetta er oft bein afleiðing af þeim innihaldsefnum sem eru notuð.

Af hverju þetta skiptir okkur hjá FORS máli

Við hjá FORS viljum einungis selja vörur sem standast okkar gæðakröfur. Þess vegna viljum við forðast fylliefni og sætuefni sem og önnur óþarfa aukaefni.

Af hverju The No Bar er öðruvísi?

Vörumerkið var stofnað í Svíþjóð af frumkvöðlunum Sanja og Victoria og varð til vegna óánægju þeirra með þau próteinstykki sem voru í boði. Þær byrjuðu með skýra stefnu og höfnuðu að nota fylliefni, gervisætuefni, sykuralkóhól eða nokkuð sem er óþarft.

Niðurstaðan er próteinstykki byggt á fáum, einföldum og auðþekkjanlegum hráefnum:

  • Prótein úr eggjahvítu, eitt aðgengilegasta prótein sem völ er á
  • Kollagen, byggingarprótein sem styður við liðamót, sinar, bein og húð
  • Döðlur, notaðar bæði sem bindiefni og sem náttúrulegt sætuefni, trefjaríkar og betri fyrir orkuna okkar heldur en hreinsaður sykur
  • Hnetur og önnur náttúruleg innihaldsefni sem er mismunandi eftir bragðtegund

Engin gervisætuefni. Engin sykuralkóhól. Engin fylliefni. Engin geymslu- eða bindiefni. Ekkert innihaldsefni sem ekki er hægt að útskýra á mannamáli.

The No Bar hráefni

Af hverju að sameina eggjahvítuprótein og kollagen?

Flest próteinstykki nota aðeins einn próteingjafa, oftast mysuprótein, sojaprótein eða ertuprótein. The No Bar notar tvo: eggjahvítuprótein og kollagen.

Eggjahvítuprótein er góður og virkur próteingjafi sem veitir allar nauðsynlegar amínósýrur í hlutföllum sem líkaminn getur nýtt sér á skilvirkan hátt. Kollagen, hins vegar, er byggingarprótein sem er ríkt af glýsíni, prólíni og hýdroxýprólíni, amínósýrum sem finnast í litlu magni í hefðbundnum próteingjöfum. Þegar kollagenpeptíð eru neytt ásamt C-vítamíni styðja þau við myndun kollagens í líkamanum og geta þannig stuðlað að heilbrigði bandvefja, þar á meðal sina, liðbanda, liðamóta og húðar.

Saman styðja þessi tvö prótein bæði frammistöðu og endurheimt í daglegu lífi.

Hvernig sæta er notuð í The No Bar?

Eingöngu döðlur eru notaðar sem sætuefni. Döðlur innihalda náttúrulegan sykur ásamt trefjum, steinefnum og andoxunarefnum. Ólíkt hreinsuðum sykri, sem veldur snöggri hækkun á blóðsykri og eftirfylgjandi orkufalli, stuðlar trefjainnihaldið í döðlum að jafnari og stöðugri orku.

Döðlur, ólíkt gervisætuefnum, eru einfaldar og vel þekktar sem hráefni og valda sjaldnast meltingaróþægindum.

Fjórar bragðtegundir af The No Bar

The No Bar Peanut bragðtegund
🥜

Peanut

Bragð af ristuðum jarðhnetum með mildri karamellukenndri sætu frá döðlum og jafnvægi í salti.

The No Bar Matcha bragðtegund
🍵

Matcha

Silkimjúkur möndlubotn með mildri beiskju frá matcha og mildri vanillu. Hreint, jarðbundið og orkugefandi.

The No Bar Coco Cacao bragðtegund
🥥

Coco Cacao

Mjúkt kakóbragð með rjómakenndum kasjúhnetum og mildri náttúrulegri sætu. Súkkulaðiorka með silkimjúkri áferð sem bragðast nánast eins og góður eftirréttur.

The No Bar Cinnamon bragðtegund
🌿

Cinnamon

Hlýr kanelkryddtónn yfir möndlu og vanillu. Notalegt, ljúffengt og náttúrulega sætt án þess að vera þungt.

Er hægt að neyta The No Bar daglega?

Já. The No Bar er ætlað til daglegrar neyslu en ekki sem fæðubót sem aðeins er tekin stöku sinnum. Það hentar vel sem fljótlegur morgunverður, snarl fyrir eða eftir æfingu, millimál á milli funda eða einfalt nesti í erli dagsins sem þarf ekki að kæla eða undirbúa.

Vegna þess að The No Bar inniheldur hvorki sykuralkóhól né gervisætuefni er hægt að neyta þess reglulega án þeirra meltingaróþæginda sem gera mörg próteinstykki óhentug til daglegrar notkunar.

Af hverju völdum við hjá FORS The No Bar?

Við reynum alltaf að vanda valið á vörumerkjum sem við vinnum með.

Framleiðendurnir, Sanja og Victoria, ætluðu sér ekki að búa til próteinstykki með hæsta próteininnihaldi eða það bragðbesta á markaðnum. Markmiðið var einfaldlega að búa til það heiðarlegasta.

Engin gervisætuefni Engin sykuralkóhól Engin fylliefni Engin fleytiefni Engin gúmmí Engar flýtileiðir

Hráefnin eru varan sjálf og það er það sem The No Bar stendur fyrir.

Verslaðu The No Bar hjá FORS

Fáanlegt í fjórum bragðtegundum. Eingöngu fáanlegt hjá FORS á Íslandi.

Verslaðu The No Bar