Af hverju er beinaseyði svona vinsælt?

Af hverju er beinaseyði svona vinsælt?

Ofurfæða sem styður við meltingu, liði, húð og endurheimt 💪

Í aldaraðir hefur beinaseyði verið talið ein næringarríkasta fæða sem völ er á. Það er náttúrulega ríkt af kollageni, amínósýrum og mikilvægum steinefnum sem styðja við meltingu, liði, endurheimt og almenna vellíðan. Í dag skortir nútíma mataræði oft þessi mikilvægu næringarefni og því hefur beinaseyði aftur orðið vinsæl dagleg viðbót til að styðja við heilsu og vellíðan á náttúrulegan hátt.

Beinaseyðisduftið frá /Animal Based er jafn öflugt og hefðbundið beinaseyði en er í þægilegu og auðveldu formi. Það er unnið úr 100% vatnsrofnu beinaseyði frá sænskum gras-fóðruðum nautgripum og inniheldur engin fylliefni, rotvarnarefni, gervibragðefni eða sætuefni, aðeins hrein og næringarrík blanda í hverri skeið.  Beinaseyði er einnig góður próteingjafi en aðeins ein mæliskeið inniheldur um það bil 9,5 grömm af próteini. 

Kollagenrík næring í sinni hreinustu mynd

Beinaseyði er ekki tískubylgja. Það inniheldur náttúrulega kollagen og lykil amínósýrur eins og glýsín, prólín og glútamín — næringarefni sem gegna mikilvægu hlutverki í að styðja við náttúrulega viðgerð og endurheimt líkamans. Þessi efni hjálpa til við að styrkja þarmavegginn, sem er nátengdur meltingu, ónæmiskerfi og upptöku næringarefna. En meltingin getur haft áhrif á daglega orku,  bólgur, húð og almenna vellíðan. Kollagen og amínósýrur stuðla einnig að liðamótahreyfanleika, vöðvabata og teygjanleika húðarinnar, sem gerir beinaseyði að vinsælli viðbót bæði fyrir virkan lífsstíl og daglega heilsurútínu.

Þar sem beinaseyðisduftið frá /Animal Based er vatnsrofið niður í smá peptíðsameindir eru næringarefnin mjög auðupptakanleg og auðveld fyrir líkamann að nýta á skilvirkan hátt. Einföld leið til að bæta mikilvægri næringu inn í daglega rútínu.

Hrein innihaldsefni fyrir daglega næringu

Gæði skipta máli þegar kemur að næringu úr dýraríkinu. Beinaseyðisduftið frá /Animal Based kemur frá sænskum gras-fóðruðum nautgripum sem eru aldir án hormóna, sýklalyfja eða erfðabreyttra efna, með áherslu á hreinleika, sjálfbærni og velferð dýra í öllu framleiðsluferlinu.

Duftið er náttúrulega laust við fylliefni, sykur, laktósa og glúten og hentar vel í súpur, þeytinga, kaffi eða einfaldlega út í heitt vatn. Hvort sem markmiðið er að styðja við meltingu, endurheimt, húð eða almenna vellíðan er beinaseyði einföld leið sem hjálpar líkamanum að dafna og styrkjast innan frá.