Sumarið er tíminn, söng Bubbi og sumarið er svo sannarlega tíminn sem flestir sem elska útiveru bíða eftir. En um leið og við vonumst eftir sólríku sumri þá er gott að íhuga hvernig best er að búa sig undir það að geta notið sólarinnar. Sólarvarnir skipta máli og þá auvitað Double Sun frá NORDBO.
Double Sun er sólarformúla sem NORDBO hefur framleitt í nokkur ár með góðum árangri. Double Sun er ekki brúnkutafla heldur vítamín sem styrkir og verndar húðina fyrir sólargeislum. Húðin brennur síður og viðkvæmir fá síður sólarexem. Fjölmargir hafa gefið Double Sun sín bestu meðmæli og Double Sun var eitt af fyrstu vítamínunum frá NORDBO sem við hjá Fors tókum í sölu.
Formúlan byggir á tveimur lykilinnihaldsefnum: Beta-karótín og Red Orange Complex®
- Beta-karótín er náttúrulegt karótínefni sem styður eðlilega litamyndun húðarinnar og gefur húðinni einnig ákveðinn ljóma.
- Red Orange Complex® er náttúrulegt þykkni, sem er ríkt af andoxunarefnum (pólyfenólum) sem hjálpa til við að vernda húðfrumur gegn oxunarálagi sólarinnar. Þetta náttúrulega þykkni er eins og nafnið gefur til kynna unnið úr rauðappelsínum og hefur rannsóknarstaðfesta virkni.
Núna er rétti tíminn til þess að byrja að undirbúa sig undir sól og sumar með Double Sun. Ástæðan er sú að húðfrumur endurnýja sig á u.þ.b. 4 til 6 vikum og með því að byrja 6-8 vikum áður en sólin verður sterkust eða áður en að farið er í sólarfrí þá fær húðin tíma til þess að byggja sig upp.
Það er einnig rétt að benda á að margir sem nota Double Sun taka einnig Omega Axtaxanthin frá NORDBO til þess að auka enn á áhrifin.

