
Góðu fréttirnar eru að það þarf hvorki dýran búnað né langan innihaldslista. Með réttu matcha-blöndunni geturðu útbúið ljúffengan drykk á örfáum mínútum - án þess að þurfa að bæta við sírópi eða öðrum sætuefnum.
Hvort sem þú elskar klassískt iced matcha latte, strawberry matcha eða matcha með kókosvatni, þá eru möguleikarnir nánast endalausir.
Hvað er matcha og af hverju er það svona vinsælt?
Matcha er fínt malað grænt te í duftformi sem á rætur að rekja til japanskrar temenningar.
Ólíkt hefðbundnu grænu tei, þar sem telaufin eru látin liggja í heitu vatni og síðan fjarlægð, er matcha-duftinu blandað beint út í drykkinn.
Matcha inniheldur náttúrulega koffín og amínósýruna L-theanine, auk ýmissa andoxunarefna sem finnast í grænu tei.
Það sem hefur gert matcha latte sérstaklega vinsælt er þó ekki síður bragðið. Matcha hefur sérstakan jurtakeim sem passar einstaklega vel með kremkenndri mjólk og mildri sætu.
Leyndarmálið á bak við gott iced matcha latte
Ef þú hefur einhvern tímann prófað matcha og hugsað „þetta bragðast bara eins og gras“, þá ertu ekki ein/n!
Matcha hefur náttúrulega ákveðinn jurtakeim sem getur verið ansi áberandi, sérstaklega ef duftið er beiskt eða ekki rétt útbúið.
En það er einmitt þar sem góð matcha-blanda getur gert allan muninn.
Matcha & Maple frá Sol Brothers er fullkomlega samsett blanda af lífrænu ceremonial matcha og lífrænum hlynsykri. Hlynsykurinn gefur milda sætu sem jafnar út jurtakeiminn og gerir bragðið mýkra og aðgengilegra - án þess að yfirgnæfa hið náttúrulega matcha-bragð.
Útkoman er ljúffengt matcha latte sem bragðast ekki bara eins og gras!
Og það besta? Þú þarft hvorki að kaupa sérstakt síróp né finna réttu hlutföllin af matcha og sætu í hvert skipti.
Einfaldara getur það ekki veriðBættu einfaldlega við vatni, klökum og uppáhaldsmjólkinni þinni - og drykkurinn er tilbúinn!
1. Klassískt iced matcha latte
Einfalt, ferskt og kremkennt. Þessi uppskrift er fullkomin fyrir þá sem vilja njóta klassísks matcha latte án þess að fara á kaffihús.
Hráefni
- 1-2 tsk. Sol Brothers Matcha & Maple
- 30-50 ml volgt vatn
- 150-200 ml köld mjólk að eigin vali
- Klakar
Aðferð
- Settu Matcha & Maple í litla skál eða bolla.
- Bættu við volgu vatni og pískaðu þar til duftið hefur blandast vel saman við vatnið og blandan er kekkjalaus.
- Fylltu glas af klökum og helltu kaldri mjólk yfir.
- Helltu matcha-blöndunni varlega yfir mjólkina.
- Hrærðu saman og njóttu!
Þar sem Matcha & Maple er þegar sætt með lífrænum hlynsykri þarftu ekki að bæta neinu öðru við til að fá mildan og bragðgóðan drykk.
Skoðaðu Matcha & Maple hjá Sol Brothers →
2. Strawberry matcha latte - með jarðarberjabragði
Strawberry matcha latte hefur notið mikilla vinsælda, enda er samsetningin af jarðarberjum, matcha og mjólk einstaklega góð.
Hefðbundnar uppskriftir kalla oft á fersk jarðarber, sykur og sérstakt jarðarberjasíróp sem þarf að útbúa áður en drykkurinn er settur saman.
En með Strawberry Matcha Blend frá Sol Brothers þarftu ekkert af þessu.
Blandan inniheldur ceremonial matcha, frostþurrkuð jarðarber, lífrænan kókossykur og lucuma-duft. Þannig færðu bæði matcha-bragðið, jarðarberjakeiminn og milda sætu í einni og sömu blöndunni.
Hráefni
- 1-2 tsk. Sol Brothers Strawberry Matcha Blend
- 30-50 ml volgt vatn
- 150-200 ml köld mjólk að eigin vali
- Klakar
Aðferð
- Pískaðu Strawberry Matcha Blend saman við volgt vatn þar til blandan er kekkjalaus.
- Fylltu glas af klökum og bættu kaldri mjólk við.
- Helltu matcha-blöndunni yfir mjólkina.
- Hrærðu saman og njóttu!
Þú þarft ekki fersk jarðarber til að fá jarðarberjabragðið! Þau eru þegar hluti af blöndunni.
Ef þú vilt hins vegar gera aðeins meira úr drykknum geturðu stappað nokkur fersk jarðarber í botninn á glasinu eða bætt þeim við sem skrauti.
Við mælum meðAð prófa þessa uppskrift með kókosmjólk eða sojamjólk.
3. Matcha með kókosvatni - fersk og létt tilbreyting
Hefurðu prófað matcha með kókosvatni?
Ef þú elskar matcha en ert ekki alltaf í stuði fyrir mjólkurdrykk, þá er þetta uppskrift sem þú ættir að prófa.
Kókosvatn er náttúrulega ferskt, inniheldur meðal annars kalíum og hefur milda sætu sem passar vel með grænum jurtakeim matcha. Útkoman er léttari drykkur í áferð en hefðbundið matcha latte.
Hráefni
- 1-2 tsk. Sol Brothers Matcha & Maple eða Strawberry Matcha
- 30-50 ml volgt vatn
- 150-200 ml kalt kókosvatn
- Klakar
- Sítróna eða límóna (valfrjálst)
Aðferð
- Pískaðu matcha-blönduna saman við volgt vatn.
- Fylltu hátt glas af klökum.
- Helltu köldu kókosvatni yfir klakana.
- Bættu matcha-blöndunni við og hrærðu saman.
- Kreistu örlítið af sítrónu eða límónu út í ef þú vilt auka ferskleikann.
Þessi uppskrift er sérstaklega góð fyrir þá sem vilja njóta matcha án mjólkur.
Gott ráðÞú getur notað Strawberry Matcha Blend í stað Matcha & Maple til að fá ferskan drykk með jarðarberja- og kókoskeim.
Hvaða mjólk er best í iced matcha latte?
Mjólkin hefur meiri áhrif á bragðið og áferðina en margir halda. Það er því þess virði að prófa mismunandi tegundir þar til þú finnur þína uppáhaldsblöndu.
Sojamjólk - mjúk og kremkennd
Sojamjólk er eitt af okkar uppáhaldi með matcha. Hún hefur yfirleitt mildan keim, gefur drykknum góða fyllingu og inniheldur almennt meira prótein en flestar aðrar jurtamjólkur.
Kókosmjólk - suðrænn keimur
Kókosmjólk er annað uppáhald hjá okkur, sérstaklega í iced matcha. Hún gefur drykknum mildan kókoskeim og getur gert hann sérstaklega kremkenndan. Veldu kókosdrykk úr kæli eða fernu fyrir léttari útgáfu, eða smávegis af þykkari kókosmjólk ef þú vilt ríkulegri áferð.
Nýmjólk - klassísk og ríkuleg
Fyrir þá sem vilja hefðbundna kúamjólk er nýmjólk frábær kostur. Hún gefur matcha latte fyllingu og náttúrulega kremkennda áferð. Milt mjólkurbragðið passar vel með jurtakeim matcha og gerir drykkinn mjúkan og bragðgóðan.
Haframjólk - klassískt kaffihúsabragð
Haframjólk er vinsæl í matcha latte enda oft mjúk, náttúrulega sæt á bragðið og auðvelt að freyða hana. Barista-útgáfur geta gefið sérstaklega kremkennda áferð.
Það er engin ein mjólk sem hentar öllum. Prófaðu þig áfram - jafnvel sama matcha-blandan getur bragðast allt öðruvísi eftir því hvaða mjólk þú notar.
Hvernig á að búa til matcha án kekkja?
Eitt algengasta vandamálið þegar fólk byrjar að útbúa matcha heima er að duftið myndar kekki. Sem betur fer er auðvelt að koma í veg fyrir það.
Volgt vatn fyrstByrjaðu á því að blanda matcha-duftinu saman við lítið magn af volgu vatni, helst um 70-80°C, áður en þú bætir við kaldri mjólk eða kókosvatni.
Þeyttu vel með bambuspísk eða litlum rafmagnsþeytara þar til blandan er orðin mjúk.
Þegar þú hefur náð tökum á þessu tekur aðeins örfáar mínútur að útbúa gott iced matcha latte.
Matcha heima - einfaldara en þú heldur
Það þarf ekki að fara á kaffihús í hvert skipti sem þig langar í gott matcha latte.
Með réttu blöndunni geturðu útbúið klassískt iced matcha, strawberry matcha eða matcha með kókosvatni heima, án þess að þurfa að kaupa mörg mismunandi hráefni.
Matcha & Maple og Strawberry Matcha Blend frá Sol Brothers eru þegar blandaðar með sætu og bragði í huga, úr eingöngu 100% náttúrulegum innihaldsefnum.
Það eina sem þú þarft að gera er að velja uppáhaldsmjólkina þína, bæta við klökum og njóta.

Sol Brothers matcha
Ceremonial matcha með náttúrulegri sætu, tilbúið í glasið á örfáum mínútum.
Skoða Matcha & Maple → Skoða Strawberry Matcha Blend →
