Margir hafa upplifað að þurfa að taka járn til þess að vinna bug á járnskorti.
Járnskortsblóðleysi (iron deficiency anemia) er þekkt heilsufarsvandamál. Nánar tiltekið er um að ræða skort á járni í blóðinu, sem getur verið með eða án skorts á rauðum blóðkornum en eins og margir vita þá er rauðu blóðkornin mikilvæg varðandi súrefnisflæði til líffæra.
Járnskortsblóðleysi getur verið lúmskt vegna þess að líkaminn getur lagað sig að ástandinu þegar breytingin er hæg. Sumir finna ekki fyrir neinum einkennum.
Helstu einkenni járnskortsblóðleysis:
- Þreyta og orkuleysi, sérstaklega við áreynslu
- Aukin mæði eða andþyngsli
- Föl húð
- Hraður hjartsláttur
- Höfuðverkur
- Pirringur í fótum eða fótaóeirð
- Svartar hægðir
Til þess að greina hvort að um sé að ræða járnskortblóðleysi þá þarf að mæla helstu blóðgildi. Ef járnskortur greinist í blóðprufu án augljósra orsaka þarf frekari rannsóknir til þess að finna skýringar á járnskortinum.
Algengast er að járnskortur verði vegna blóðtaps, annaðhvort við mikla og skyndilega blæðingu eða þegar blæðing er hæg og yfir lengri tíma.
Helstu ástæður:
- Miklar tíðablæðingar
- Meðganga
- Blæðingar í meltingarvegi
- Járnsnautt fæði
Óþægindi við inntöku á járni
Algengasta meðferðin til þess að draga úr einkennum og laga járnskortsblóðleysi snýst um inntöku á járntöflum eða járnfæðubótarefnum. Hins vegar er það ekki alltaf einfalt. Ástæðan er sú að mörg járnfæðubótarefni innihalda járnsúlfat sem er erfitt fyrir meltingarkerfið. Slík fæðubótarefni frásogast illa og kalla því á stærri skammta. Það getur hins vegar valdið meltingaróþægindum, leitt til magakrampa, uppþembu og hægðartregðu. Þessi einkenni valda því að viðkomandi efast um meðferðina og líður oft jafnilla og áður.
Af hverju er Nordbojárnið öðruvísi?
Nordbo járndblandan veldur flestum engum óþægindum. Nordbo plöntuformúlan inniheldur járnbisglýsínat sem þýðir að járnsameindin er bundin amínósýru sem kallast glýsín. Þessi tenging má segja að verndi járnið þegar það fer í gegnum meltingarveginn sem gerir meltinguna mýkri og frásög eða upptöku betri. Járnbisglýsínat frásogast mjög vel þannig að líkaminn notar í raun það sem við tökum inn með þeim árangri að afgangur verður minni og nánast engin erting og hægðartregða.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) mælir með járnbisglýsínati fyrir fólk sem á erfitt með járnupptöku og fær aukaverkanir af öðrum gerðum eða formum járns.
Nordbo bætir einnig c-vítamíni við formúluna en c-vítamín hámarkar upptöku járns í líkamanum. Það er einnig góð regla að taka járn með einhverju sem er náttúrulega ríkt af c-vítamíni eins og t.d. kíví, appelsínum eða jarðaberjum.
Það er því engin ástæða lengur til þess að hætta að taka járn vegna aukaverkana. Nordbo er með lausnina.