Puressentiel

Puressentiel kemur til Íslands

FORS · Puressentiel
Puressentiel kemur til Íslands
Puressentiel er eitt þekktasta vörumerki Evrópu á sviði ilmkjarnaolía og nú eru vörurnar loksins fáanlegar á Íslandi.
Skoða vörur frá Puressentiel →

Við hjá Fors erum stolt af því að kynna nýtt samstarf við franska fyrirtækið Puressentiel. Puressentiel er eitt þekktasta vörumerki Evrópu á sviði ilmkjarnaolía og nú eru vörurnar loksins fáanlegar á Íslandi.

Í fyrstu lotu kynnum við fimm vörulínur fyrir hversdagsleg óþægindi: vöðva og liði (Muscle And Joint), hreinsunarúða (Purifying spray), Kveflínu eða Respiratory vörulínu, flugnafæluúða og roll on fyrir skordýrabit. Einnig kynnum við höfuðlúsameðferð. Þær eiga það allar sameiginlegt að vera unnar úr náttúrulegum hráefnum, fyrst og fremst hreinum ilmkjarnaolíum.

Hver er Puressentiel?

Puressentiel var stofnað í Frakklandi árið 2005 af hjónunum Isabelle og Marco Pacchioni. Isabelle er dóttir grasalæknis og náttúrulæknis og ólst upp við að nota jurtir og ilmkjarnaolíur til að hlúa að fjölskyldunni. Markmið þeirra var einfalt: að gera ilmkjarnaolíur aðgengilegar í tilbúnum, öruggum og auðveldum vörum.

Í dag er Puressentiel enn sjálfstætt fjölskyldufyrirtæki. Það er leiðandi vörumerki í ilmmeðferð í frönskum apótekum og vörurnar eru seldar í yfir 70 löndum. Fyrirtækið vinnur með grasafræðingum, vísindamönnum, læknum og lyfjafræðingum og framleiðir vörurnar í Frakklandi samkvæmt GMP gæðastöðlum.

2005 stofnað í Frakklandi
70+ lönd
GMP gæðastaðlar

Puressentiel notar eingöngu ilmkjarnaolíur sem eru skilgreindar bæði grasafræðilega og lífefnafræðilega. Það þýðir að uppruni hverrar plöntu og samsetning olíunnar er þekkt og staðfest. Vörurnar eru án litarefna, rotvarnarefna og tilbúinna ilmefna.

Þetta fellur vel að okkar sýn hjá Fors: færri en vandaðri vörur, hrein hráefni og rannsóknir að baki.

Fors mun byrja með Vöðva og liða vörurnar, ásamt bakteríudrepandi loftúða, kvefvörur og náttúrulegt lúsameðal. Seinna munum við svo kynna flugnafælulínuna. Bæði fyrirbyggjandi og afterbite úða.

Vöðvar og liðir: hiti sem slakar á

Puressentiel framleiðir nokkrar öflugar vörur hannaðar fyrir vöðva og liði. Pure Heat® er ein þeirra.

Pure Heat® roll-on inniheldur 14 ilmkjarnaolíur, meðal annars vetrargrænu, einiber, piparmyntu, rósmarín og eukalyptus, ásamt þykkni úr arniku og djöflakló. Formúlan er 97,6% af náttúrulegum uppruna og gefur notalega og langvarandi hitatilfinningu. Nuddkúlan gerir þér kleift að nudda olíunum beint inn á svæðið.

Rúllan hentar vel á bak, háls, axlir, hné og kálfa, til dæmis fyrir æfingu til að hita upp eða eftir langan vinnudag.

Skoða Pure Heat® roll-on

Hreinsandi loftúði með 41 ilmkjarnaolíu

Við Íslendingar verjum stórum hluta vetrarins innandyra, og inniloftið skiptir máli. Hreinsandi loftúðinn (Purifying Air Spray) er vinsælasta vara Puressentiel og mest ráðlagði hreinsiúðinn í Frakklandi.

Úðinn byggir á einkaleyfisvarinni blöndu 41 hreinnar ilmkjarnaolíu, meðal annars tetrés, sítrónu, timjans, piparmyntu og furu. Samkvæmt rannsóknum framleiðandans eyðir hann yfir 99,9% af bakteríum, veirum og myglusveppagróum í lofti. Hann inniheldur ekkert drifgas, engin tilbúin ilmefni og engin litarefni.

Úðanum má spreyja út í loftið eða á sófa, teppi, rúmföt og fataskápa. Hann hentar vel í svefnherbergi, á baðherbergi, í bílinn og á skrifstofuna og skilur eftir sig ferskan og hreinan ilm.

Kveflínan: andaðu léttar í vetur

Stíflað nef og kvefpestir eru fastur liður í íslenska skammdeginu. Respiratory línan frá Puressentiel (Resp'OK®) byggir á 19 ilmkjarnaolíum, meðal annars eukalyptus, ravintsara, piparmyntu, niaouli og tetré, sem hafa hreinsandi og róandi eiginleika.

Nefsprey frá Puressentiel
01

Öndunarúði

Öndunarúði (Air Spray) er spreyjaður út í loftið, til dæmis við koddann á kvöldin, eða í skál af heitu vatni til að anda að sér gufunni.

02

Innöndunarstifti

Innöndunarstifti (Inhaler) er lítið og handhægt og passar í vasann. Það inniheldur náttúrulegt mentól og kamfóru og hjálpar þér að anda frjálsar þegar nefið er stíflað.

03

Hálstöflur

Hálstöflur með hunangi og timian.

04

Hóstamixtúra fyrir fullorðna

Hóstamixtúra fyrir fullorðna og börn frá 7 ára aldri. Hún inniheldur hunang, propolis og þykkni úr sólhatti (echinacea), acerolaberjum, læknastokkrósarrót og furubrumum, ásamt ilmkjarnaolíum úr eukalyptus, sítrónu, rósmarín og piparmyntu. Mixtúran myndar verndandi himnu í hálsinum, róar ertingu og dregur úr tíðni hósta. Hún er án rotvarnarefna og litarefna.

05

Hóstamixtúra fyrir börn

Hóstamixtúra fyrir börn frá 1 árs aldri, með náttúrulegu jarðarberjabragði. Hún inniheldur reyrsykur, hunangsduft, þykkni úr læknastokkrósarrót, akasíugúmmí, xantangúmmí, sítrónusýru, náttúrulegt jarðarberjabragðefni og náttúruleg tókóferól (E-vítamín). Mixtúran myndar verndandi lag í hálsinum sem róar þurran hósta, og hún þynnir slím við slímhósta. Hún er án glútens, laktósa, alkóhóls, rotvarnarefna og litarefna. Skammtur: 5 ml þrisvar á dag fyrir 1–5 ára og 10 ml þrisvar á dag fyrir 6–11 ára.

06

Nefsprey

Nefsprey eða nasaúði. Engir sterar eða kemísk efni sem eru slæm fyrir slímhúðina. Er ekki ávanabindandi.

Best er að nota vörurnar strax við fyrstu merki um óþægindi.

Gegn skordýrabitum: róar kláðann

Hvort sem það er lúsmý í sumarbústaðnum, mýflugur við Mývatn eða moskító á ferðalaginu, þá er kláðinn eftir bit hvimleiður. Róandi roll-on gegn bitum (Anti-Sting) inniheldur 11 lífrænar ilmkjarnaolíur, meðal annars lavender, piparmyntu, tetré, sítrónugras og negul.

Rúllunni er rúllað beint á bitið og hún gefur kælandi og róandi tilfinningu. Hún hentar fyrir bit eftir mý, moskító, geitunga, býflugur, flær og köngulær og einnig eftir brenninetlu. Litla 5 ml flaskan passar í töskuna, vasann eða sjúkrakassann í bílnum.

Flugnafæla: vörn í allt að 7 klukkustundir

Flugnafælan (Anti-Pique Spray) hefur tvöfalda virkni: hún heldur skordýrum frá og róar húðina eftir bit. Virka efnið, Citriodiol®, er unnið úr ilmkjarnaolíu sítrónueukalyptus. Samkvæmt rannsóknum framleiðanda veitir það vörn í allt að 7 klukkustundir gegn moskítóflugum, þar á meðal tígrisflugunni, og í allt að 5 klukkustundir gegn skógarmítlum.

Fimm lífrænar ilmkjarnaolíur róa húðina ef bit verður: sítrónugras, lavandín, piparmynta, niaouli og tetré.

Úðinn er án DEET og taugaeiturs og hentar allri fjölskyldunni frá 30 mánaða aldri. Hann er tilvalinn í útileguna, sumarbústaðinn og ferðalög til heitari landa. Sund og sviti geta stytt virknitímann, svo þá þarf að úða aftur. Börn mega fá að hámarki 7 úðanir á dag. Úðinn hentar ekki barnshafandi konum eða konum með barn á brjósti. Úðinn fælir burt sandflugur skv. rannsóknum er sandflugur eru ekki ósvipaðar lúsmýi.

Gegn höfuðlús: án skordýraeiturs

Flestir foreldrar fá einhvern tímann tölvupóstinn frá skólanum: „Lús hefur greinst í bekknum.“ Lúsameðferð Puressentiel (Anti-Lice) er lækningatæki sem eyðir lúsum, lirfum og nitum á um 10 mínútum.

Virknin byggir á sex jurtaolíum, þar á meðal er kókos-, jojoba- og möndluolía. Virknin snýst um að loka öndunaropum lúsanna svo þær kafna. Lýsnar geta því ekki myndað ónæmi gegn meðferðinni. Fjórar ilmkjarnaolíur, lavender, negull, tetré og geranía, róa kláða í hársverðinum.

Varan er án taugaeiturs, dímetikóns og sílikons og hentar allri fjölskyldunni frá 3 ára aldri. Sérstakur stálkambur fylgir með.

Notkunarupplýsingar

Berðu lausnina ríkulega í þurrt hár, lokk fyrir lokk. Láttu hana bíða í þann tíma sem kemur fram á umbúðunum eða í um 15 mínútur, þvoðu hárið með sjampói og kembdu svo vel með lúsakambinum. Flestum nægir ein meðferð en um 20% þurfa aðra meðferð eftir þrjá daga til þess að losna við þessa hvimleiðu óværu.

Gott að vita um ilmkjarnaolíur

Ilmkjarnaolíur eru öflug náttúruefni og því skiptir máli að nota þær rétt:

  • Fylgdu alltaf leiðbeiningum á umbúðum.
  • Forðastu snertingu við augu og slímhúð og þvoðu hendur eftir notkun.
  • Flestar vörurnar henta ekki börnum yngri en 3–7 ára, barnshafandi konum eða konum með barn á brjósti. Athugaðu aldursmörk á hverri vöru.
  • Leitaðu ráða hjá lækni ef þú ert með flogaveiki, astma eða ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna.
  • Ef óþægindi eru mikil eða lagast ekki skaltu hafa samband við heilsugæsluna.

Velkomin, Puressentiel

Við hlökkum til að kynna fleiri vörur frá Puressentiel á næstu mánuðum. Kynntu þér úrvalið í vefversluninni okkar og hafðu samband ef þú hefur spurningar á fors@fors.is.

Skoða vörur frá Puressentiel → Frí heimsending þegar verslað er fyrir 14.000 kr. eða meira. Einnig er hægt að sækja pantanir frítt í vöruhúsið okkar í Garðabæ.