Undanfarið höfum við fengið margar fyrirspurnir um þetta sérstaka græna duft … þ.e.a.s. matcha. Við höfum verið að leita að rétta vörumerkinu sem passar við hugmyndafræðina okkar. Þ.e.a.s. einföld, náttúruleg hráefni með framúrskarandi gæði, sem raunverulega virka.
Nú höfum við fundið rétta vörumerkið og kynnum því með ánægju Sol Brothers, sem býður upp á hágæða ceremonial matcha og kakó sem er framleitt til að njóta á hverjum degi, ekki bara við sérstök tilefni.
Hvað er matcha?
Matcha er fínt malað duft úr ungum grænum teblöðum sem hafa verið ræktuð í skugga til að auka klórófyll, andoxunarefni og amínósýrur. Ólíkt venjulegu grænu tei er allt teblaðið notað, svo að öll næringin fylgir teblaðinu beint í bollann. Útkoman er te sem er náttúrulega líflegt á lit, mjúkt í bragði og fullt af karakter.
Matcha er ekki aðeins bragðgott; það styður einnig orkumikinn og jafnvægisríkan lífsstíl. Það er ríkt af L-theanine og andoxunarefnum sem veita rólega og stöðuga orku og skýra einbeitingu. Þess vegna velja margir matcha sem valkost í staðinn fyrir kaffi.
Matcha vs. kaffi
Bæði matcha og kaffi innihalda koffín, en áhrifin eru ólík. Kaffi gefur oftast orkuskot sem virkar í skammann tíma og síðan finna flestir fyrir orkufalli. Matcha inniheldur minna koffín í hverjum skammti, en náttúrulegar amínósýrur – sérstaklega L-theanine – vinna með koffíninu til að skapa rólega og jafnari orku sem endist í allt að sex klukkustundir. Þannig færðu betri einbeitingu og andlegan skerpu, án orkufalls.

Af hverju skipta gæði matcha máli
Ekki er allt matcha eins. Hágæða ceremonial matcha er framleitt úr yngstu laufum skuggaræktaðra teplantna, sem eru vandlega valin og malað hægt með steinkvörnum. Þetta tryggir að bragð, litur og næringarefni haldist. Lággæða matcha er oft úr eldri laufum, getur verið beiskt eða dauft í bragði og er stundum blandað með sykri eða gerviefnum.
Sol Brothers – nýjar bragðgóðar útgáfur
Matcha & Maple sameinar hágæða ceremonial matcha með örlitlum hlynsykri, sem skapar mjúkan og ljúffengan drykk. Þessi blandan gefur þér fullkomið jafnvægi, milda sætu og stöðuga orku, án beiskju eða gerviefna.
Strawberry Matcha Blend er hágæða ceremonial matcha sem er blandað með frostþurrkuðum jarðarberjum, lífrænum kókospálmasykri og lucuma-dufti. Niðurstaðan er lífleg og náttúruleg útgáfa af matcha með sama rólega orkuskotið sem eflir einbeitinguna.
Fyrir þá sem vilja prófa eitthvað öðruvísi, er Ceremonial Cacao & Maple hágæða, lífrænt raw Criollo kakó með léttum hlynsykri. Þetta er mjúkur, silkimjúkur drykkur sem getur verið góður valkostur í staðinn fyrir kaffi. Cacao eða kakó með stöðugri orku frá theobromine.

