Kvennaklefinn

Kvennaklefinn

Kvennaklefinn frá Fors er lítið upplýsingarit þar sem fæðubótarefni fyrir konur frá DR.VEGAN eru kynnt og þar er að finna greinargóðar upplýsingar um virkni og innihald. Kvennaklefinn snýst um konur og aftur konur. Í kvennaklefanum, hvort sem er í sundi eða í ræktinni, geta konur skipst á upplýsingum og rætt saman í ró og næði um heilsufarstengd málefni. Kvennaklefinn fyrir konur á öllum aldri. 

Heilsa kvenna snýst um heildræna vellíðan sem nær yfir líkamlega, andlega og félagslega heilsu á öllum æviskeiðum. Hún tekur mið af hormónabreytingum, tíðarhring, frjósemi, meðgöngu og breytingaskeiði, en einnig af öllum almennum þáttum sem hafa áhrif á daglegt líf og heilsu. Þar gegna hreyfing og næring lykilhlutverki.

DR.VEGAN framleiðir hágæða fæðubótarefni fyrir konur þar sem tekið er tillit til allra ofangreindra þátta. Framleiðslan byggir á rannsóknum þar sem kvensjúkdómalæknar, næringarfræðingar og ýmsir meðferðaraðilar vinna saman að því að framleiða vítamín sem virka. Flest fæðubótarefnin eru margverðlaunuð. 

Flest fæðubótarefni sem finna má í Kvennaklefanum hafa verið kynnt hér á síðunni okkar með margvíslegum hætti. 

Heilsa kvenna breytist eftir aldri - auðvitað
Líkaminn breytist. Stuðningurinn ætti að gera það líka. Konur fá oft sömu heilsuráð 25 ára og 55 ára. Sömu fæðubótarefni. Sömu rútínur. Sömu skilaboð um að „borða hollt og hreyfa sig“. Heilsufarsleg vandamál eru hinsvegar gjörólík eftir æviskeiðum. Hormón breytast. Næringarþarfir breytast. Þol gegn streitu þróast. Endurheimt hægist. Svefnmynstur og svefnþarfir breytast sömuleiðis.

Hjá FORS hugsum við um heilsu kvenna eftir æviskeiðum - ekki sem eina lausn fyrir alla.

Tvítugs- og þrítugsárin

Þetta er áratugur skuldbindinga og fjárfestinga. Vökur og lítill svefn, streita, hormónasveiflur, annasamir dagar, lítið borðað, mikið koffín — allt þetta safnast hratt upp. 

Algengar áskoranir:
• tíðaverkir/PMS
• óreglulegar blæðingar
• járnskortur
• unglingabólur
• orkufall
• meltingarvandamál
• streita

Það sem skiptir mestu máli:
• stöðugur blóðsykur
• steinefnabirgðir (járn, magnesíum, sink)
• heilbrigð melting
• streituþol
• gæðasvefn

Mikilvæg fæðubótarefni:
• Járn (ef skortur er til staðar)
• Magnesíum glýsínat
• Hágæða probiotic (góðgerlar)
• Omega-3
• B-vítamín

Þrítugs- og fertugsárin

Hormónin hafa meiri áhrif

Á þessum árum upplifa marga konur að það sem virkaði ... virkar ekki lengur.

Hormónabreytingar hefjast.
Prógesterón lækkar oft fyrst.
Streita verður áhrifameiri.
Svefn verður léttari og ekki eins reglulegur.
Þyngdaraukning getur orðið vandamál.
Blæðingar breytast. 

Algengar áskoranir:
• kulnun
• þrálát þyngdaraukning
• kvíði
• versnandi PMS eða fyrirtíðaspenna
• for-tíðahvörf (pre-menopause) geta byrjað fyrr en búist var við
• blóðsykurssveiflur

Það sem skiptir mestu máli:
• stuðningur við streitu og kortisól
• stöðug orka
• bólgueyðandi næring eða fæðubótarefni
• hreinsun á lifur
• öflugri endurheimt

Mikilvæg fæðubótarefni:
• Aðlögunarjurtir (ashwagandha, rhodiola)
• Magnesíum
• NAC eða glútaþíón-stuðningur
• Trefjar, prebiotics og probiotics (góðgerlar)
• Omega-3
• D-vítamín

Fertugs - fimmtugsár og áfram

Fortíðahvörf (premenopause)→ tíðahvörf → eftir tíðahvörf (postmenopause)

Þetta lífsskeið situr oft á hakanum en samt er þetta ein stærsta líffræðilega umbreytingin. Estrógen lækkar, vöðvamassi minnkar, beinþéttni breytist, svefn getur breyst, bólgumyndanir aukast og efnaskipti hægjast.

Þessar breytingar á ekki að afgreiða sem „bara öldrun“ - þetta er lífeðlisfræði.

Algengar áskoranir:
• hitakóf
• slæmur svefn
• heilaþoka
• stirðleiki í liðum
• skapbreytingar
• breytingar á fitudreifingu
• breytingar á kólesteróli
• líkamsstyrkur minnkar

Það sem skiptir mestu máli:
• próteininntaka
• viðhalda vöðvamassa
• beinheilsa
• vernd hjarta- og æðakerfis
• bólgustjórnun
• stuðningur við taugakerfið

Mikilvæg fæðubótarefni:
• Kalsíum + D3 + K2
• Kreatín
• Kollagen
• Magnesíum
• Plöntuestrógen (ef við á)
• Omega-3

Sameiginlegt með öllum aldursskeiðum?

Holl og góð hreyfing og aftur hreyfing.

Engin fæðubótarefni geta slegið út hollan og góðan mat, sem inniheldur prótein og trefjar. Fæðubótarefni eru stuðningur — ekki töfralausn.

MenoFriend, pH Hero og Women´s ProMulti eru dæmi um frábær fæðubótarefni frá DR.VEGAN. Öll hafa þau unnið til margskonar verðlauna. MenoFriend er frábært fyrir konur fyrir, við og eftir tíðahvörf. Women´s ProMulti er alhliða fæðubótarefni fyrir konur á öllum aldri. pH Hero hefur reynst vel við að styrkja legöng og þvagfæri gegn skaðlegum bakteríum, þrusku, þvagfærasýkingum og þurrki. Allar vörurnar frá DR.VEGAN eru án allra auka- eða fylliefna.