Bólur og óhrein húð eru ekki bara unglingavandamál. Margir glíma við þær langt fram á fullorðinsár og þær geta haft mikil áhrif á sjálfstraustið. Krem og hreinsiefni gera sitt, en húðin endurspeglar líka það sem gerist innra með okkur.
Skin Cleanse frá Nordbo er ný útgáfa af okkar vinsæla Nutriskin Clean. Við höfum selt Nutriskin Clean í nokkur ár og umsagnir viðskiptavina okkar hafa verið frábærar. Skin Cleanse er enn öflugri vara. Um er að ræða 30 daga hreinsikúr sem taka á kvölds og morgna. Þannig styður Skin Cleanse við húðina allan sólarhringinn.
Hvað veldur bólum?
Bólur myndast þegar hársekkir stíflast af fitu og dauðum húðfrumum. Í stífluðum sekknum geta bakteríur fjölgað sér og valdið bólgu, roða og graftarbólum. Margt hefur áhrif á þetta ferli:
Hormónar
Hormónar auka fituframleiðslu húðarinnar, til dæmis á unglingsárum, í kringum blæðingar og á breytingaskeiði.
Bólgur
Bólgur í líkamanum gera bólur rauðari og aumari.
Umhverfið
Umhverfið, eins og mengun og þurrt inniloft, veikir varnarlag húðarinnar.
Næring
Næring skiptir líka máli. Rannsóknir hafa ítrekað sýnt að þeir sem eiga í erfiðleikum með bólur eru að jafnaði með lægra sinkmagn í blóði en aðrir.
Skin Cleanse tekur á nokkrum þessara þátta í einu.
Hvað er í Skin Cleanse?
Skin Cleanse inniheldur samtals 9 virk innihaldsefni, skipt á milli morgun- og kvöldhylkja.
Skin Cleanse er vegan vottað og þróað og framleitt í Svíþjóð af Nordbo. Hylkin koma í glerkrukkum með málmloki sem verja innihaldið fyrir raka og súrefni.
Morgunhylkin: vörn og viðgerð
Sink
Sink stuðlar að viðhaldi eðlilegrar húðar og er nauðsynlegt fyrir eðlilegan gróanda. Í safngreiningu sem birtist í Dermatologic Therapy árið 2020, kom fram að fólk með bólur var með marktækt lægra sinkmagn í blóði en aðrir. Þeir sem fengu sink fengu jafnframt færri bólgnar bólur en samanburðarhópar.
FenuKale™
FenuKale™ er einkaleyfisvarið þykkni úr bláum grikkjasmára (Trigonella caerulea) og grænkáli frá svissneska fyrirtækinu Mibelle. Í klínískri rannsókn með lyfleysu tóku þátttakendur í mjög menguðu umhverfi FenuKale í 56 daga. Rakastig húðarinnar jókst marktækt, vatnstap úr húðinni minnkaði og þátttakendur upplifðu meiri ljóma og sléttari áferð.
Grænt te
Grænt te inniheldur katekína, öflugra pólýfenóla sem hjálpa til við að vernda húðina gegn loftmengun.
Kvöldhylkin: endurnýjun yfir nóttina
Spírúlína og klórella
Spírúlína og klórella eru næringarríkir smáþörungar, vinsælir fyrir hreinsandi eiginleika sína.
Bíótín
Bíótín stuðlar að viðhaldi eðlilegrar húðar.
Kamilla
Kamilla stuðlar að slökun og góðum svefni, og húðin endurnýjar sig einmitt mest á meðan við sofum.
Svona notar þú Skin Cleanse
Að morgni
2 morgunhylki með máltíð. Ekki taka þau á fastandi maga eða sama dag og aðrar vörur sem innihalda grænt te.
Að kvöldi
2 kvöldhylki, með eða án matar.
Einn pakki dugar í 30 daga. Hægt er að taka Skin Cleanse sem kúr eða samfellt. Hylkin má opna og blanda innihaldinu í kaldan vökva. Varan er ætluð fullorðnum, 18 ára og eldri.
Húðin endurnýjar sig á um það bil fjórum vikum, svo flestir þurfa að minnsta kosti einn heilan kúr til að sjá mun.
Góð ráð fyrir hreinni húð
- Þvoðu andlitið kvölds og morgna með mildum hreinsi og forðastu að nudda fast.
- Ekki kreista bólur, því það eykur bólgu og getur skilið eftir ör.
- Skiptu reglulega um koddaver og hreinsaðu símaskjáinn.
- Drekktu nóg vatn og borðaðu fjölbreytta fæðu.
- Ef bólurnar eru miklar, sárar eða skilja eftir ör er gott að leita til húðlæknis.
Skin Cleanse frá Nordbo
Ný útgáfa af okkar vinsæla Nutriskin Clean.
30 daga skammtur · 120 hylki
Skin Cleanse frá Nordbo
30 daga hreinsikúr, kvölds og morgna.
Skoða Skin Cleanse → Frí heimsending þegar verslað er fyrir 14.000 kr. eða meira. Einnig er hægt að sækja pantanir frítt í vöruhúsið okkar í Garðabæ.Heimildir
- Nordbo Skin Cleanse: innihald og notkun (Lyko)
- Yee o.fl. (2020): sink og bólur, safngreining í Dermatologic Therapy
- Klínísk rannsókn á FenuKale™ (PMC)
- FenuKale™: niðurstöður rannsóknar (Nutritional Outlook)
Þessi grein er eingöngu til fróðleiks og kemur ekki í stað ráðgjafar læknis. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreytts mataræðis og heilbrigðs lífernis.

