Af hverju virka góðgerlar ekki fyrir alla? Colostrum gæti verið skrefið sem vantar.

Af hverju virka góðgerlar ekki fyrir alla? Colostrum gæti verið skrefið sem vantar.

 

 

Animal Based  ·  Colostrum
Af hverju virka góðgerlar ekki fyrir alla? Colostrum gæti verið skrefið sem vantar.
Góðgerlar eru nefnilega ekki alltaf fyrsta skrefið í átt að betri þarmaheilsu. Stundum liggur skýringin annars staðar.
Animal Based Grass-fed Colostrum frá FORS

Þú hefur eflaust prófað góðgerla einhvern tímann. Kannski oftar en einu sinni og jafnvel frá fleiri en einu vörumerki. Kannski tókst þú þá samviskusamlega í nokkrar vikur, beiðst eftir að finna mun en fannst árangurinn ekki alveg standa undir væntingum. Það þýðir þó ekki endilega að þú hafir valið ranga góðgerla eða að þeir henti þér einfaldlega ekki.

Þarmaveggurinn: varnarlína líkamans

Uppþemba, húðvandamál, orkuleysi, sykurlöngun og lélegur svefn. Þessi ólíku einkenni gætu átt meira sameiginlegt en þú heldur.

Slímhúð þarmanna myndar örþunna varnarlínu sem stjórnar því hvað kemst út í blóðrásina. Þegar hún starfar eðlilega hleypir hún næringarefnum í gegn en heldur bakteríum og öðrum óæskilegum efnum innan meltingarvegarins.

Skýringarmynd af heilbrigðri slímhúð þarmanna

Ef slímhúðin verður gegndræpari geta óæskileg efni komist yfir þessa varnarlínu, virkjað ónæmiskerfið og ýtt undir bólgusvörun í líkamanum. Stór hluti ónæmiskerfisins er staðsettur í þörmunum og því snýst heilbrigði þeirra um miklu meira en bara meltinguna.

Skýringarmynd af gegndræpri slímhúð þarmanna

Streita, áfengi, mikið unnin matvæli og sýklalyf eru meðal þeirra þátta sem geta haft áhrif á þessa viðkvæmu varnarlínu.

Hér kemur broddmjólk til sögunnar

Broddmjólk (e. colostrum) er fyrsta næring nýfæddra spendýra. Hún er einstaklega rík af lífvirkum efnum, þar á meðal immunóglóbúlínum (mótefnum) og vaxtarþáttum, sem gegna mikilvægu hlutverki í ónæmisvörnum og þroska meltingarvegarins.

En hver er munurinn á broddmjólk og góðgerlum? Góðgerlar bæta gagnlegum bakteríum við þarmaflóruna, en broddmjólk styður við umhverfið sem þær búa í.

Skýringarmynd af því hvernig broddmjólk styður við slímhúð þarmanna

Rannsóknir á broddmjólk úr kúm benda meðal annars til þess að hún geti stutt við slímhúð þarmanna og eðlilega starfsemi þarmaþröskuldarins, varnarlínuna sem við ræddum um hér að ofan. Í stað þess að einblína eingöngu á bakteríurnar er því líka verið að huga að grunninum.

Hvað leynist í broddmjólk?

Broddmjólk inniheldur einstaka blöndu lífvirkra efna sem styðja við þarmaflóru, slímhúð þarmanna og náttúrulegar varnir líkamans.

  • Mótefni (IgG, IgA og IgM)Broddmjólk er einstaklega rík af immunóglóbúlínum sem eru mikilvægur hluti af náttúrulegum vörnum líkamans.
  • VaxtarþættirLífvirk efni sem taka þátt í vexti, viðhaldi og endurnýjun frumna og vefja, þar á meðal í meltingarveginum.
  • LaktóferrínPrótein sem bindur járn og hefur náttúrulega örveruhamlandi eiginleika.
  • Fásykrur (oligosaccharides)Næring fyrir gagnlegar bakteríur í þörmunum sem hjálpar til við að styðja við heilbrigða þarmaflóru.
  • Prólínrík fjölpeptíð (PRP)Lífvirk peptíð sem taka þátt í stjórnun og jafnvægi ónæmissvarsins.
Hylki af broddmjólk í hendi

Fyrst grunnurinn. Svo góðgerlarnir.

Góðgerlar bæta bakteríum við þarmaflóruna. Broddmjólk vinnur á annan hátt, hún styður við slímhúð þarmanna og umhverfið sem góðu bakteríurnar þurfa til að þrífast.

En broddmjólk er ekki bara broddmjólk

Vinsældir broddmjólkur hafa aukist hratt en mikill munur getur verið á vörum. Það sem skiptir mestu máli er hversu mikið af raunverulegri broddmjólk varan inniheldur, hvaðan hún kemur og hvernig hún er unnin.

Animal Based Colostrum er 100% hrein broddmjólk frá grasfóðruðum kúm í Evrópu, án fylliefna, sætuefna, litarefna eða rotvarnarefna.

  • 100% broddmjólkurduftEkkert annað.
  • Frá grasfóðruðum kúm í EvrópuÁn erfðabreyttra efna.
  • Unnið við lágt hitastigTil að varðveita viðkvæm lífvirk efni.
  • Framleitt og pakkað í Þýskalandi
Animal Based Grass-fed Colostrum, 240 hylki

Haustið er komið og um leið fer kvefi og umgangspestum að fjölga. Í stað þess að bíða þar til fyrstu veikindin gera vart við sig geturðu byrjað að huga að þarmaheilsunni og daglegri rútínu núna. Byrjaðu á grunninum.

Takmarkað magn

Það er aðeins lítið magn eftir af núverandi framleiðslulotu. Ef þú hefur verið að hugsa um að prófa broddmjólk er því um að gera að prófa núna.

Skoða Grass-fed Colostrum → ★★★★★4,80 af 5 stjörnur frá viðskiptavinum okkar Frí heimsending þegar verslað er fyrir 14.000 kr. eða meira, eða frítt að sækja í vöruhúsið okkar í Garðabæ.