
Karlar geta einnig fengið þvagfærasýkingu þó hún sé algengari hjá konum.
Trönuber hafa lengi verið tengd heilbrigðum þvagfærum, en ekki eru öll trönuberjabætiefni eins. Nordbo Full Spectrum Cranberry er mjög öflugt fæðubótarefni og þar má finna nokkur innihaldsefni sem vinna vel saman. Þar má helst nefna D-mannósa og Pacran®.
Hvernig verða þvagfærasýkingar til?
Í langflestum tilfellum er það bakterían E. coli sem veldur sýkingunni.
- Bakterían berst að þvagrásinni og upp í þvagblöðruna.
- Til að valda sýkingu þarf hún að ná festu á slímhúð þvagfæranna, og það gerir hún með örsmáum þráðum sem krækjast í mannósasameindir á yfirborði frumnanna.
- Nái bakterían ekki að festa sig skolast hún einfaldlega út með þvaginu.
Þetta er lykilatriðið: nái bakterían ekki að festa sig skolast hún einfaldlega út með þvaginu. Bæði Pacran® og D-mannósi vinna í sameiningu gegn þessu.
Pacran®: trönuber með rannsóknir að baki
Pacran® er skráð vörumerki fyrir duft úr heilum trönuberjum. Það er staðlað að innihaldi próantósýanidína (PAC), sem eru pólýfenól með andoxunarvirkni. PAC eru til í A- og B-gerð og trönuber eru sérstaklega rík af A-gerðinni. Það er einmitt A-gerðin sem gerir ákveðnum bakteríum erfitt að festa sig við slímhúð þvagfæranna.
Nordbo Full Spectrum Cranberry inniheldur 36 mg af PAC af A-gerð.
Pacran® er eitt mest rannsakaða trönuberjahráefni í heiminum. Í rannsókn sem birtist í The American Journal of Clinical Nutrition árið 2025 tóku þátt um 150 konur á aldrinum 18-65 ára sem höfðu fengið endurteknar þvagfærasýkingar. Niðurstöðurnar voru sláandi og staðfestu enn og aftur virkni Pacran.
Rannsóknir síðustu ára benda til þess að heilt berið skipti máli, ekki aðeins PAC eitt og sér. Þess vegna er Pacran® unnið úr öllu berinu.
D-mannósi: tálbeita fyrir bakteríur
D-mannósi er einföld sykrutegund sem finnst náttúrulega í sumum ávöxtum. Hann hefur lítil áhrif á blóðsykurinn og skilst út með þvaginu. Þar getur hann bundist bakteríum eins og E. coli, og þegar bakteríurnar grípa í D-mannósa í stað slímhúðarinnar skolast þær auðveldar burt.
Hugsaðu þér tálbeituBakterían heldur að hún sé að ná taki á vegg þvagblöðrunnar en grípur í staðinn sameind sem flýtur út.
Rannsóknir á D-mannósa lofa góðu en eru ekki samhljóða.
Birkilauf, gullhrís og D3-vítamín
Auk Pacran® og D-mannósa inniheldur blandan þrjú önnur efni:
Birkilauf
Hafa lengi verið notuð í norrænni jurtahefð til að styðja við eðlilega starfsemi þvagfæra.
Gullhrís
Gullhrís (Solidago virgaurea) er jurt sem hefðbundið hefur verið notuð til að styðja við skolun þvagfæranna.
D3-vítamín
D3-vítamín (D3V®) er unnið úr evrópskum þörungum og er því vegan. D-vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins, sem skiptir ekki síst máli í íslensku skammdegi.
Full Spectrum Cranberry er vegan vottað og þróað og framleitt í Svíþjóð af Nordbo, fjölskyldufyrirtæki frá Malmö.
Notkun og góð ráð
Ráðlagður skammtur er 2 hylki á dag, með eða án matar. Hægt er að taka þau samfellt eða tímabundið. Hylkin má opna og blanda innihaldinu í kaldan vökva.
Nokkur einföld ráð fyrir heilbrigð þvagfæri:
- Drekktu nóg vatn yfir daginn.
- Ekki halda í þér þegar þú þarft að pissa.
- Pissaðu eftir samfarir.
- Þurrkaðu þér framan frá og aftur.

Hvenær á að leita til læknis? Fæðubótarefni koma ekki í stað meðferðar. Ef einkenni lagast ekki á einum til tveimur dögum, eða þú færð hita, verk í bak eða síðu eða blóð í þvagið, skaltu hafa samband við heilsugæsluna. Barnshafandi konur og börn með einkenni ættu alltaf að leita til læknis.
Nordbo Full Spectrum Cranberry
Pacran®, D-mannósi, birkilauf, gullhrís og D3-vítamín í einu fæðubótarefni.
Skoða Nordbo Full Spectrum Cranberry →Heimildir
- Givaudan: rannsókn á Pacran í The American Journal of Clinical Nutrition (2025)
- Kyriakides o.fl. (2020): D-mannósi og endurteknar þvagfærasýkingar, European Urology Focus
- Safngreining á D-mannósa (2025), Brazilian Journal of Nephrology
- D-mannósi hjá fullorðnum konum: safngreining

